Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, spjallaði við Hilmar Þór, fjölmiðlafulltrúa KSÍ í Kína í dag.
Landsliðið er í Kína sem stendur þar sem það keppir í alþjóðlegu móti en fyrsti leikur mótsins er gegn heimamönnum í Kína. Hann segir að standið á liðinu sé heilt yfir gott en nú sé verið að venjast tímamismuninum.

„Hún er góð að flestu leyti. Flestir leikmenn eru heilir heilsu en Svava Rós er eitthvað tæp í ökklanum, hún spilar ekki gegn Kína en verður klár í leik tvö."
„Annars snýst þetta um að koma okkur í gang og snúa við sólarhringnum. Allir sem komu frá Íslandi eru komnir á gott ról."
Hann býst við erfiðum leik gegn Kína.
„Þetta verður erfiður leikur, þær eru með gott lið, númer 13 á heimslista og eru nýkomnar frá Olympíuleikunum. Þær eru með líkamlega sterkt lið og tæknilega fínar ásamt því að þær eru á heimavelli."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir