Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 18. október 2016 12:04
Elvar Geir Magnússon
Óli Palli: FH í færi til að láta drauma sína rætast
Ólafur Páll Snorrason.
Ólafur Páll Snorrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Páll Snorrason var á dögunum ráðinn aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar, þjálfara FH. Ólafur snýr aftur í Krikann þar sem hann var sigursæll sem leikmaður áður en hann gerðist spilandi aðstoðarþjálfari Fjölnis og var þar í tvö ár.

„Ég er FH-ingur og mun alltaf verða. Þar af leiðandi er ég mjög sáttur með það tækifæri sem mér bauðst til að koma aftur," segir Ólafur.

„Það var erfitt eins og oft er. Ég var að yfirgefa félag sem ég hef mikil tengsl við en er gríðarlega ánægður með að vera kominn hingað aftur."

FH stefnir á Íslandsmeistaratitil á hverju ári en í Hafnarfirði vilja menn enn meira.

„Það er ekkert launungarmál með það. Við stefnum hátt. FH hefur ekki náð að vinna báðar dollurnar á sama tímabili og það er eitt af okkar markmiðum. Við stefnum alltaf vel í að gera vel í Evrópukeppninni. Við eigum okkur allir stóra drauma og við erum í ákveðnu færi til að láta þá drauma rætast."

Reynsluboltinn Veigar Páll Gunnarsson samdi við FH-inga í dag.

„Fyrir utan frábæran fótboltamann erum við að fá skemmtilegan náunga og afbragðs karakter í hóp. Við vitum alveg hvað Veigar hefur fram að færa og erum þess vegna gríðarlega ánægðir með daginn. Þetta er frábær fótboltamaður og við vitum hvað hann getur gert fyrir okkur innan sem utan vallar," segir Ólafur en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner