„Maður er kannski farin að missa svolítið mikið úr skólanum en þetta er bara gaman,“ sagði Agla María Albertsdóttir þegar Fótbolti.net náði tali af henni fyrir æfingu Íslands í morgun en landsliðið spilar tvo mikilvæga leiki í undankeppni HM á næstu dögum. Það hefur verið mikið um ferðalög hjá landsliðskonunni ungu að undanförnu og hún þarf því að nýta frítímann að miklu leyti í heimanám.
„Ég verð eiginlega að gera það. Ég er búin að fara til Króatíu og Rússlands með Stjörnunni og svo til Færeyja og er komin hingað núna. Er örugglega búin að missa alveg mánuð úr skólanum þannig að ég er bara lærandi,“ sagði Agla María sem er þó einbeitt fyrir komandi leiki.
„Þetta eru risavaxin verkefni. Maður hefur náttúrulega spilað á móti Þýskalandi í yngri landsliðunum og það hafa alltaf verið mjög erfiðir leikir. Þær eru mjög líkamlega sterkar og erfitt að eiga við þær. En við förum inn í þessa leiki til að gera okkar besta og reyna að í úrslit.“
Nánar er rætt við Öglu Maríu í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir