„Þetta eru sanngjörn úrslit," sagði Antonio Conte, stjóri Chelsea, eftir 3-3 jafntefli gegn Roma í kvöld.
„Þetta var erfiður leikur á móti góðu liði. Fyrri hálfleikurinn reyndist okkur erfiður, frammistaðan var góð en við erum ekki vanir því að spila svona fótbolta," sagði Conte.
Chelsea var aðeins 40% með boltann í kvöld.

„Við náðum ekki að halda boltanum innan liðsins í fyrri hálfleiknum og það var erfitt, þrátt fyrir að við höfum náð að skora tvö mörk. Það var ekki gott fyrir okkur að breyta kerfinu, en þegar þú ert í erfiðri stöðu þarftu stundum að breyta til."
David Luiz varð fyrir hnjaski í leiknum og þurfti að fara af velli.
„David Luiz var í vandræðum með kálfann á sér, ég get ekki tekið neinar áhættur. Við notum alltaf sömu leikmennina."
Athugasemdir