lau 18. nóvember 2017 19:31
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England: Pogba aðalmaðurinn í sigri Man Utd
Paul Pogba skoraði og lagði upp í dag.
Paul Pogba skoraði og lagði upp í dag.
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic er mættur aftur til leiks.
Zlatan Ibrahimovic er mættur aftur til leiks.
Mynd: Getty Images
Manchester Utd 4 - 1 Newcastle
0-1 Dwight Gayle ('14 )
1-1 Anthony Martial ('37 )
2-1 Chris Smalling ('45 )
3-1 Paul Pogba ('54 )
4-1 Romelu Lukaku ('70 )

Manchester United sigraði Newcastle örugglega í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni með fjórum mörkum gegn einu marki gestanna.

Það voru hins vegar gestirnir í Newcastle sem komust yfir á 14. mínútu leiksins, þar var að verki Dwight Gayle.

Anthony Martial jafnaði metin þegar átta mínútur voru eftir af fyrri hálfleik eftir sendingu frá Paul Pogba sem kom aftur inn í lið Manchester United í dag eftir meiðsli.

Chris Smalling tókst að skalla boltann í netið í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir sendingu frá Ashley Young, staðan 2-1 fyrir Man Utd í hálfleik.

Næst var röðin komin að Paul Pogba en hann setti boltann í netið af stuttu færi þegar seinni hálfleikur var níu mínútna gamall, Romelu Lukaku gulltryggði svo sigur heimamanna á 70. mínútu þegar hann hamraði boltann í netið af nokkuð stuttu færi.

Manchester United komið með 26 stig í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, átta stigum á eftir grönnum sínum í Manchester City.

Zlatan Ibrahimovic snéri aftur inn á knattspyrnuvöllinn í dag en hann lék síðustu 13 mínútur leiksins.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 20 4 4 70 24 +46 64
2 Liverpool 28 19 7 2 65 26 +39 64
3 Man City 28 19 6 3 63 28 +35 63
4 Aston Villa 29 17 5 7 60 42 +18 56
5 Tottenham 28 16 5 7 59 42 +17 53
6 Man Utd 28 15 2 11 39 39 0 47
7 West Ham 29 12 8 9 46 50 -4 44
8 Brighton 28 11 9 8 50 44 +6 42
9 Wolves 28 12 5 11 42 44 -2 41
10 Newcastle 28 12 4 12 59 48 +11 40
11 Chelsea 27 11 6 10 47 45 +2 39
12 Fulham 29 11 5 13 43 44 -1 38
13 Bournemouth 28 9 8 11 41 52 -11 35
14 Crystal Palace 28 7 8 13 33 48 -15 29
15 Brentford 29 7 5 17 41 54 -13 26
16 Everton 28 8 7 13 29 39 -10 25
17 Luton 29 5 7 17 42 60 -18 22
18 Nott. Forest 29 6 7 16 35 51 -16 21
19 Burnley 29 4 5 20 29 63 -34 17
20 Sheffield Utd 28 3 5 20 24 74 -50 14
Athugasemdir
banner
banner