Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. nóvember 2017 17:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnhildi tókst ekki að hampa bikarmeistaratitlinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Avaldsnes 1 - 0 Valerenga
1-0 Elise Thorsnes ('6)

Það er aldrei gaman að tapa úrslitaleikjum. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fékk að kynnast því í dag.

Gunnhildur lék með Valerenga þegar liðið mætti Avaldsnes í úrslitaleik norska bikarsins í dag.

Avaldsnes komst snemma yfir og náði að halda út.

Valerenga fékk tækifæri til að jafna og Gunnhildur komst meðal annars nálægt því að skora eftir 73 mínútur.

Allt kom hins vegar fyrir ekki og Avaldsnes stendur uppi sem bikarmeistari. Gunnhildur og stöllur verða að sætta sig við silfurpening.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner