Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 18. nóvember 2017 17:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp hefði verið til í að sjá fleiri mörk
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var mjög sáttur eftir 3-0 sigur á Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Þetta var erfiður leikur, Southampton er mjög gott lið. Þetta var opinn leikur, við fengum góð færi áður en við skoruðum. Við þurftum að sýna þolinmæði," sagði Klopp eftir leikinn.

„Fyrsta markið var frábært og annað markið kom eftir frábæra sendingu og hlaupið hjá Salah var stórkostlegt."

„Við hefðum klárlega getað skorað fleiri mörk, en heilt yfir var þetta fullkominn dagur."

Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir þennan sigur með 22 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner