Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. nóvember 2017 14:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil: Nýt þess að spila með Sanchez og Lacazette
Mynd: Getty Images
„Í dag var markmiðið að gera allt og trúa á okkur sjálfa," sagði Mesut Özil, leikstjórnandi Arsenal, eftir 2-0 sigur á nágrönnunum og helstu erkifjendunum í Tottenham.

Özil var frábær í leiknum, maður leiksins.

Hann segist njóta þess að spila með Alexandre Lacazette og Alexis Sanchez í fremstu víglínu hjá Arsenal.

„Ég nýt þess virkilega að spila með Alexandre Lacazette og Mesut Özil. Við erum með mikil gæði og þeir eru báðir mjög hættulegir. Í dag sýndi Alexis gæði sín og ég er mjög ánægður fyrir hann."

„Auðvitað erum við mjög ánægður, stuðningsmenn eru líka ánægðir. Vörnin okkar er stöðugri og sterkari þegar Shkodran Mustafi er að spila," sagði Özil að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner