Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. nóvember 2017 17:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Suarez gat loksins fagnað í sigri Barcelona
Suarez gerði tvö og batt endi á markaþurrð.
Suarez gerði tvö og batt endi á markaþurrð.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez var á skotskónum þegar Barcelona heimsótti Leganes í spænsku úrvalsdeildinni í dag.

Suarez hefur átt í erfiðleikum að undanförnu og ekki alveg fundið markaskóna. Hann fann þá hins vegar í dag þegar hann hjálpaði Barcelona að vinna góðan útisigur.

Hann sá til þess að Barcelona var 1-0 í hálfleik og eftir stundarfjórðung í seinni hálfleiknum bætti hann við öðru marki, 2-0. Paulinho gerði síðan þriðja markið undir lokin.

Barcelona hefur náð í 34 stig af 36 mögulegum í spænsku úrvalsdeildinni og sitja þægilega á toppi deildarinnar.

Í leik sem var fyrr í dag hafði Getafe betur gegn Alaves á heimavelli sínum. Þar urðu lokatölur 4-1.

Leganes 0 - 3 Barcelona
0-1 Luis Suarez ('28 )
0-2 Luis Suarez ('60 )
0-3 Paulinho ('90 )

Getafe 4 - 1 Alaves
1-0 Markel Bergara ('6 )
2-0 Jorge Molina ('9 , víti)
3-0 Angel Rodriguez ('53 )
4-0 Angel Rodriguez ('64 )
4-1 Christian Santos ('81 )



Athugasemdir
banner
banner