Enska knattspyrnusambandið hefur dæmt Mario Balotelli, framherja Liverpool, í eins leiks bann út af mynd sem hann birti á Instagram síðu sinni á dögunum.
Balotelli hefur einnig verið sektaður um 25 þúsund pund eða tæpar 5 milljónir króna.
Balotelli hefur einnig verið sektaður um 25 þúsund pund eða tæpar 5 milljónir króna.
Balotelli verður í banni þegar Liverpool mætir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.
Balotelli fékk hörð viðbrögð eftir að hann birti myndina á Instagram en hann var sakaður um kynþáttahatur.
Ítalski framherjinn var fljótur að bregðast við með því að taka myndina út og biðjast afsökunar en enska knattspyrnusambandið hefur nú ákveðið að refsa honum.
Athugasemdir