Gylfi Þór Sigurðsson hefur hrósað Wilfried Bony í hástert en þeir félagar hafa náð vel saman í liði Swansea á þessu tímabili.
Bony hefur verið orðaður við brottför frá Swansea að undanförnu en Gylfi vonar að félagið nái að halda honum.
Bony hefur verið orðaður við brottför frá Swansea að undanförnu en Gylfi vonar að félagið nái að halda honum.
,,Wilf er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann skorar mikið af mörkum og er ógnandi. Ef hann nær að komast í færi þá skorar hann í níu af hverjum tíu," sagði Gylfi.
,,Hann er líkamlega sterkur og hann tímasetur hlaup sín vel. Allir hjá Swansea vonast til að halda honum. Ég er viss um að félagið verður ánægt ef að hann verður hér eitt tímabil í viðbót."
Swansea mun missa Bony þann 17. janúar þegar hann fer á Afríkumótið með Fílabeinsströndinni en mótið er til 8. febrúar.
Athugasemdir