Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. desember 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Huddlestone: Fékk ekki rautt til að fara í jólafrí
,,Í jólafrí með þig.
,,Í jólafrí með þig."
Mynd: Getty Images
Tom Huddlestone, miðjumaður Hull, hefur svarað gagnýnisröddum þess efnis að hann hafi viljandi reynt að fá beint rautt spjald gegn Chelsea um síðustu helgi til að fá frí yfir jólahátíðina.

Huddlestone er á leið í fjögurra leikja bann og verður því ekkert með Hull fyrr en á nýju ári.

,,Ég kvarta ekkert yfir rauða spjaldinu eftir að hafa horft á endursýningu þar sem þetta lítur mun verr út en ég bjóst við," sagði Huddlestone.

,,Ég er að vona að ég geti notað þessar tvær/þrjár vikur í leikbanni til að losna við meiðsli sem hafa verið að hrjá mig."

,,Ég mun æfa öll jólin svo ég svari þeim sem eru vitlausir og halda að ég sé að fá frí um jólin."

Athugasemdir
banner
banner