Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. desember 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Juventus heimsækir Cagliari
Mynd: Getty Images
Topplið Juventus heimsækir fallbaráttulið Cagliari í fyrsta leik 16. umferðar ítölsku efstu deildarinnar í kvöld.

Napoli, sem er í 7. sæti, fær þá botnlið Parma í heimsókn í síðari leik kvöldsins.

Juve er ekki með neima eins stigs forystu á AS Roma í toppbaráttunni en næstu lið eru Lazio, Sampdoria og Genoa með 26 stig.

Napoli er með 24 stig og getur komið sér í 3. sæti með sigri á meðan Parma er óvænt í botnsæti deildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti.

Leikir kvöldsins:
18:00 Cagliari - Juventus
20:00 Napoli - Parma
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner