Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 18. desember 2014 22:27
Daníel Freyr Jónsson
Ítalía: Zapata og Mertens skoruðu í sigri Napoli
Dries Mertens skoraði síðara mark Napoli.
Dries Mertens skoraði síðara mark Napoli.
Mynd: Getty Images
Napoli 2 - 0 Parma
1-0 Duvan Zapata ('19)
2-0 Dries Mertens ('30)

Napoli vann í kvöld fyrirhafnalítinn 2-0 sigur á lánlausu botnliði Parma á heimavelli.

Duvan Zapata skoraði fyrra mark leiksins á 19. mínútu eftir sendingu Cristian Maggio.

Napoli tvöfaldaði forystu sína rúmum 10 mínútum síðar þegar Belginn Dries Mertens skoraði úr vítaspyrnu.

Reyndust þetta einu mörk leiksins og er Napoli í 3. sæti deildarinnar með 27 stig, en hefur þó leikið einum leik meir en önnur lið.

Parma er áfam í botnsætinu með einungis sex stig úr 16 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner