Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. desember 2014 00:59
Magnús Már Einarsson
Myndband: Mörk Alfreðs gegn Oviedo
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason skoraði bæði mörk Real Sociedad í 2-0 sigri á Real Oviedo í 32-liða úrslitum í spænska konungsbikarnum í kvöld.

Þetta voru tvö fyrstu mörk Alfreðs með Real Sociedad síðan hann kom til félagsins frá Heerenveen í sumar.

Þetta var síðari leikur Sociedad og Oviedo en fyrri leikurinn í síðustu viku endaði með markalausu jafntefli.

Alfreð skoraði mörkin í sitthvorum hálfleiknum en bæði komu þau með skoti af stuttu færi. Alvöru framherja mörk.

Hér að neðan má sjá myndband af mörkunum. Ýtið á skjáinn í hægra horninu til að fá stærri og betri mynd.


Athugasemdir
banner
banner
banner