Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 18. desember 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Southampton hefur ekki efni á Sneijder
Wesley Sneijder.
Wesley Sneijder.
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman, stjóri Southampton, hefur blásið á sögusganir þess efnis að Wesley Sneijder sé á leið til félagsins.

Hinn þrítugi Sneijder gæti verið á förum frá Galatasaray og hann hefur verið orðaður við Southampton.

,,Ég hef áhuga en við getum ekki borgað honum. Ég veit það því að umboðsmaðurinn hans er líka umboðsmaðurinn minn," sagði Koeman.

Southampton hefur tapað fimm leikjum í röð en lítil breidd í leikmannahópnum er farinn að segja til sín.

Dusan Tadic verður ekki með gegn Everton um helgina og þeir Graziano Pelle og Steven Davis eru báðir tæpir vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner