Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. desember 2014 21:12
Daníel Freyr Jónsson
Spánn - Úrslit: Atletico fór áfram
Mandzukic gerði bæði mörk Atletico.
Mandzukic gerði bæði mörk Atletico.
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid er komið í 16-liða úrslit spænska konungsbikarsins eftir að hafa gert 2-2 jafntefli gegn L'Hospitalet í síðari leik liðana í kvöld.

Fyrri leiknum lauk með 3-0 sigri Atletico sem voru því í þægilegri stöðu fyrir leikinn sem fram fór á heimavelli Spánarmeistarana.

Mario Mandzukic gerði bæði mörk Atletico í leiknum, en gestunum tókst í tvígang að jafna metin.

Þá er Elche komið áfram eftir 1-0 sigur á Real Valladolid á heimavelli.

Atletico Madrid 2 - 2 L'Hospitalet
1-0 Mario Mandzukic ('19)
1-1 Ruben Alcaraz ('68)
2-1 Mario Mandzukic ('74)
2-2 Ruben Alcaraz ('84)

Elche 1 - 0 Real Valladolid
1-0 Adrian Gonzalez ('7)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner