Alfreð Finnbogason er leikmaður umferðarinnar í þýsku Bundesligunni hjá Kicker.
Alfreð skoraði öll þrjú mörk Augsburg í 3-3 jafntefli gegn Freiburg á laugardaginn.
Alfreð skoraði öll þrjú mörk Augsburg í 3-3 jafntefli gegn Freiburg á laugardaginn.
Tvö af mörkunum komu í viðbótartíma en Alfreð náði þannig að tryggja Augsburg stig.
Alfreð hefur nú skorað 11 mörk á tímabilinu í þýsku Bundesligunni, en aðeins Pierre-Emerick Aubameyang og Robert Lewandowski hafa skorað fleiri mörk en hann.
Athugasemdir