Mesut Özil skoraði frábært mark á laugardaginn þegar Arsenal hafði betur gegn Newcastle, 1-0.
Petr Cech markvörður Lundúnarliðsins var hrifinn af markinu og sagði að markið hafi minnt hann á mark Zinedine Zidane í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2002 í Glasgow.
„Þetta var frábært mark, það minnti mig á mark Zinedine Zidane í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Glasgow gegn Leverkusen."
„Boltinn stefndi í aðra átt en með tækninni hans fór boltinn í netið og vann leikinn fyrir okkur," sagði Petr Cech.
Özil skaut Arsenal í 33 stig en þeir eru nú í fimmsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, næsta verkefni hjá þeim er 8-liða úrslit í enska deildarbikarnum en þar mæta þeir West Ham á morgun.
Athugasemdir