David Moyes, stjóri West Ham, hefur líkt Marko Arnautovic við Paolo Di Canio sem sló í gegn hjá Hömrunum á sínum tíma.
„Ég tel að hann sé þessi týpa af leikmanni," sagði Moyes eftir að Arnautovic var á skotskónum í 3-0 útsigri gegn Stoke um helgina.
„Ég tel að hann sé þessi týpa af leikmanni," sagði Moyes eftir að Arnautovic var á skotskónum í 3-0 útsigri gegn Stoke um helgina.
Arnautovic fagnaði ógurlega þegar hann skoraði gegn gömlu félögunum í Stoke á laugardaginn. Arnautovic fékk óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum Stoke en svaraði fyrir sig með marki.
Austurríkismaðurinn hafði átt nokkrar misheppnaðar tilraunir áður en hann skoraði loksins í síðari hálfleiknum.
„Ef þú kemur honum í form og hann skorar og sýnir hvað í honum býr þá eru þeir svipaðir. Stuðningsmennirnir elska svona karakter," sagði Moyes.
Athugasemdir