Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, er bjartsýnn á að liðið geti unnið titla á næstu árum.
Liverpool hefur ekki orðið enskur meistari síðan árið 1990 en Salah vill breyta því.
Liverpool hefur ekki orðið enskur meistari síðan árið 1990 en Salah vill breyta því.
„Ég veit að liðið hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina í langan tíma en ég myndi gjarnan vilja vinna með Liverpool," sagði Salah.
„Við erum með frábært lið, frábæran stjóra og allt er gott hjá félaginu. Ég er viss um að við getum unnið titla saman."
Salah hefur skorað 20 mörk í öllum keppnum síðan hann kom til Liverpool frá Roma í sumar.
Athugasemdir