banner
   fös 19. janúar 2018 10:17
Magnús Már Einarsson
Goretzka ekki til Liverpool - Fer til Bayern í sumar (Staðfest)
Leon Goretzka.
Leon Goretzka.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Leon Goretzka hefur tilkynnt Schalke að hann gangi í raðir Bayern Munchen í sumar.

Samningur Goretzka hjá Schalke rennur út í sumar og því fer hann frítt til Bayern. Goretzka er nú þegar búinn að ná samningum við Bayern og standast læknisskoðun.

Liverpool og fleiri félög höfðu sýnt Goretzka áhuga en hann ákvað að velja Bayern.

„Við erum að missa virkilega góðan leikmann," sagði Christian Heidel þjálfari Schalke í dag.

Goretzka er 22 ára gamall en hann hefur skorað sex mörk í fyrstu tólf leikjum sínum með þýska landsliðinu.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner