Liverpool ætlar ekki að reka Jon Flanagan frá félaginu eftir að hann var dæmdur í vikunni fyrir árás á kærustu sína.
Flangan var dæmdur til að sinna samfélagsþjónustu í 40 klukkutíma eftir árásina. Flanagan var ákærður eftir líkamsárás í miðborg Liverpool aðfaranótt 22. desember. Hann sló kærustu sína ítrekað og sparkaði einu sinni í hana.

Liverpool ætlar ekki að segja upp samningi sínum við bakvörðinn samkvæmt frétt Liverpool Echo.
Flanagan er sjálfur sagður miður sín eftir atvikið og fullur eftirsjár. Liverpool ætlar ekki að rifta samningi við hann en hins vegar er ekki ólíklegt að hann verði seldur frá félaginu í sumar.
Tímabilið 2010/2011 spilaði hinn 25 ára gamli Flanagan sína fyrstu leiki fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og mikla vonir voru þá bundnar við hann.
Framfarir hans hafa þó ekki verið miklar og hann hefur nánast eingöngu spilað með varaliðinu á þessu tímabili.
Athugasemdir