Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. janúar 2018 19:05
Ingólfur Stefánsson
Heimild: DailyMail 
Mkhitaryan búinn að kveðja liðsfélaga sína
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Samkvæmt DailyMail kvaddi Henrikh Mkhitaryan liðsfélaga sína hjá Manchester United og starfsfólk klúbbsins eftir æfingu með liðinu í dag.

Félagsskipti Mkhitaryan til Arsenal færast nær en hann mun að öllum líkindum ganga til liðs við félagið í skiptum fyrir Alexis Sanchez sem fer til Manchester United.

Heimildamaður DailyMail innan herbúða Manchester United sagði að kveðjustundin hafi verið tilfinningaþrungin enda hafi Mkhitaryan verið vinsæll innan herbúða United.

Hann segir að Mkhitaryan sé ósáttur með að vera þvingaður frá félaginu en geri sér grein fyrir því að hann fái meiri spilatíma hjá Arsenal.

Talið er að Mkhitaryan sé nú á leið til London þar sem hann mun hitta umboðsmann sinn og reyna að ganga frá samningum.

United mun borga 35 milljónir punda fyrir Sanchez. 20 milljónir punda til Arsenal og 15 milljónir til umboðsmanns hans. Auk þess mun Sanchez fá 350 þúsund pund á viku hjá United.

Ekki hefur verið gengið frá samningum um kaupverð á Mkhitaryan. Mkhitaryan var með 140 þúsund pund á viku hjá Manchester United og talið er að hann verði launahæsti leikmaður Arsenal eftir skiptin.

Sanchez æfði með Arsenal í dag og enn er möguleiki á því að hann spili sinn síðasta leik fyrir Arsenal gegn Crystal Palace á morgun.

Athugasemdir
banner
banner
banner