Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. janúar 2018 08:40
Magnús Már Einarsson
Staveley vill ennþá kaupa Newcastle
Amanda Staveley.
Amanda Staveley.
Mynd: Getty Images
Amanda Staveley segist ennþá hafa áhuga á að kaupa Newcastle af Mike Ashley. Í október lýsti Ashley því yfir að hann vildi selja Newcastle eftir að hafa átt félagið undanfarin tíu ár.

Staveley hafði verið í viðræðum um kaup á Newcastle undanfarnar vikur en viðræðurnar sigldu í strand í vikunni. Staveley hefur hins vegar ennþá áhuga á að kaupa félagið.

„Ég hef ennþá mjög mikinn áhuga. Tilboð okkar er ennþá á borðinu," sagði Staveley en hún leiðir hóp fjárfesta sem vilja eignast Newcastle.

Staveley segir að Rafael Benítez verði áfram stjóri ef hún eignast félagið.

„Rafa er að sinna ótrúlegu starfi. Við viljum hafa Rafa sem hluta af þessu verkefni," sagði Staveley.
Athugasemdir
banner
banner