Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. janúar 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Augsburg í Evrópubaráttu
Alfreð er þriðji markahæstur í Þýskalandi.
Alfreð er þriðji markahæstur í Þýskalandi.
Mynd: Getty Images
Pierre-Emerick Aubameyang verður ekki með Borussia Dortmund er liðið heimsækir Hertha Berlin í þýska boltanum í kvöld.

Aubameyang er líklega á leið til Arsenal og er verið að ganga frá félagsskiptunum áður en janúarglugginn lokar.

Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg koma við sögu á morgun er þeir heimsækja Borussia Mönchengladbach í Evrópubaráttunni. Sigur getur komið Augsburg upp í þriðja sæti. Alfreð hefur verið að glíma við meiðsli en spilar vonandi um helgina.

RB Leipzig á útileik gegn Freiburg á meðan Hoffenheim og Bayer Leverkusen mætast í hörkuspennandi evrópuslag.

Köln er búið að vinna tvo leiki í röð á botni deildarinnar og mætir Hamburger í botnslagnum. Þriðji sigurinn í röð getur gefið félaginu vonarneista um að halda sér uppi. Köln er átta stigum frá öruggu sæti eftir 18 umferðir.

Topplið Bayern mætir liðsfélögum Arons Jóhannssonar í Werder Bremen á sunnudaginn áður en Schalke tekur á móti Hannover í síðasta leik helgarinnar.

Föstudagur:
19:30 Hertha Berlin - Dortmund (Stöð 2 Sport 3)

Laugardagur:
14:30 B. M'Gladbach - Augsburg
14:30 Freiburg - Leipzig
14:30 Hoffenheim - Leverkusen
14:30 Mainz - Stuttgart
14:30 Wolfsburg - Frankfurt
17:30 Hamburger - Köln

Sunnudagur:
14:30 Bayern - Werder Bremen (Stöð 2 Sport 2)
17:00 Schalke - Hannover
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner