Bandaríski markvörðurinn Tori Ornela hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélag ÍA.
Ornela er 25 ára gömul. Hún spilaði með Haukum í Pepsí deild kvenna síðasta sumar.
Í samtali við heimasíðu ÍA segist hún vera spennt fyrir komandi sumri.
Ornela er 25 ára gömul. Hún spilaði með Haukum í Pepsí deild kvenna síðasta sumar.
Í samtali við heimasíðu ÍA segist hún vera spennt fyrir komandi sumri.
„Ég er spennt að koma aftur til Íslands og þakklát fyrir að halda áfram knattspyrnuferlinum. Ég hlakka til komandi tímabils og er staðráðin í að bæta mig sem leikmaður."
Skagastúlkur hafa verið í markmannsleit eftir að ljóst varð að Katrín María Óskarsdsdóttir ákvað að taka sér frí frá knattspyrnu. María Mist Guðmundsdóttir og Tori Ornela verða því markmannsteymi liðsins í sumar.
Athugasemdir