Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 19. janúar 2018 15:30
Elvar Geir Magnússon
Tottenham vill fá Malcom
Til London?
Til London?
Mynd: Getty Images
Daily Mirror segir að Tottenham hafi áhuga á því að fá Brasilíumanninn Malcom frá Bordeaux.

Malcom hefur verið orðaður við Arsenal en einhverjir fjölmiðlar halda því fram að félagið hafi hætt við að reyna að fá hann.

„Nei, við erum ekki nálægt því að krækja i hann," sagði Wenger aðspurður út í Malcom í gær

Sagt er að Tottenham hafi þegar rætt við umboðsmann Malcom en líklegt er að leikmaðurinn kosti um 40 milljónir punda.

Malcom er tvítugur sóknarleikmaður.
Athugasemdir
banner