Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fös 19. janúar 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Walcott: Get ekki þakkað Wenger nægilega mikið
Wenger og Walcott árið 2006.
Wenger og Walcott árið 2006.
Mynd: Getty Images
Theo Walcott, nýjasti leikmaður Everton, segist ekki geta þakkað Arsene Wenger nægilega mikið fyrir traustið sem hann sýndi honum hjá Arsenal.

Wenger kom til Arsenal frá Southampton fyrir tólf árum en eftir fá tækifæri á þessu tímabili ákvað hann að ganga í raðir Everton í vikunni. Hann segist ekki vera svekktur út í Wenger eftir fá tækifæri á tímabilinu.

„Ég hef alltaf borið svo mikla virðingu fyrir honum," sagði Walcott.

„Allir leikmenn eru pirraðir ef þeir spila ekki en þú þarft að grafa djúpt og komast úr þeirri stöðu. Það gekk ekki á þessu tímabili af einhverjum ástæðum. Þess vegna fór ég annað."

„Ég hef þekkt Wenger síðan ég var 16 ára. Að fá ungan leikmann og hafa trú á honum er eitthvað sem ég get ekki þakkað honum nægilega mikið fyrir."

Athugasemdir
banner
banner
banner