Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 19. febrúar 2017 21:54
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ítalía: AC Milan með nauman sigur
Deulofeu skoraði sigurmark leiksins
Deulofeu skoraði sigurmark leiksins
Mynd: Getty Images
Milan 2 - 1 Fiorentina
1-0 Juraj Kucka ('16 )
1-1 Nikola Kalinic ('20 )
2-1 Gerard Deulofeu ('31)

AC Milan fékk Fiorentina í heimsókn í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Heimamenn byrjuðu betur þegar Juraj Kurcka kom Milan yfir en Fiorentina var ekki lengi að svara fyrir sig með marki frá Nikola Kalinic.

Það var svo Gerard Deulofeu sem skoraði sigurmark Milan á 31. mínútu en hann leikur með liðinu á láni frá Everton.

Með sigrinum er Milan enn í 7. sæti en þeir komust nær baráttunni um Evrópusæti. Fiorentina virðist hins vegar vera að fjarlægast þá baráttu.


Athugasemdir
banner
banner