Millwall sigruðu Englandsmeistara Leicester í gærkvöldi í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar og trylltust aðdáendur liðisins eftir leikinn og hlupu inn á völlinn.
Þrír stuðningsmenn Millwall voru handteknir eftir að þeir hlupu inn á völlinn en lögreglan tilkynnti það í dag.
Hörðustu stuðningsmenn Millwall eru sagðir vera einhverjar verstu fótboltabullur Englands.
Sigur Millwall var dramatískur en þeir skoruðu á lokamínútum leiksins en Millwall leikur í C-deild ensku deildarkeppninnar. Þeir hafa hins vegar verið öflugir í bikarnum síðustu árin og komust til að mynda í úrslitaleikinn árið 2004.
„Mér líkar það ekki þegar svona gerist," sagði Claudio Ranieri, stjóri Leicester um stuðningsmenn Leicester.
Athugasemdir