Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 19. febrúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Lars Óli semur við Magna
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Lars Óli Jessen hefur samið um að leika áfram með Magna Grenivík í sumar.

Lars Óli er miðjumaður en hann hjálpaði Magna að komast upp úr 2. deildinni í fyrra.

Hinn 27 ára gamli Lars skoraði tíu mörk í sautján leikjum í 2. deildinni í fyrra.

Lars er uppalinn í Þór en hann hefur meira og minna spilað með Magna á meistarflokksferli sínum.

Magni gerði markalaust jafntefli við KR í Lengjubikarnum í fyrradag en næsti leikur liðsins er gegn Breiðabliki á laugardaginn.

Hér að neðan má sjá mynd af Lars í nýjum búningi Magna fyrir sumarið.
Athugasemdir
banner
banner
banner