Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 19. mars 2017 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Gestede: Bailly beit mig ekki - Knúsaði mig og kyssti
Mynd: Getty Images
Einhverja grunaði að Eric Bailly hefði bitið Rudy Gestede er leikmennirnir mættust í enska boltanum í dag.

Manchester United vann 3-1 gegn nýliðum Middlesbrough og lentu Gestede og Bailly í samstuði í leiknum.

„Við áttum orðaskipti en ekkert meira en það. Hann knúsaði mig og kyssti, ég fann ekki fyrir neinu öðru," sagði Gestede að leikslokum.

„Ben Gibson hélt hann hefði bitið mig og þess vegna brást hann illa við, en ég sagði honum að það væri ekkert mál og að enginn hafði verið bitinn."

Gestede kom inn af bekknum á 77. mínútu og minnkaði muninn í 2-1, en Antonio Valencia innsiglaði sigur Rauðu djöflanna á lokamínútunum.
Athugasemdir
banner
banner