Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. mars 2017 15:52
Stefnir Stefánsson
Guardiola: Getum ekki leyft okkur að spila eins og gegn Monaco
Guardiola
Guardiola
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola stjóri Manchester City gaf sig á tal við blaðamenn fyrir leik liðsins gegn Liverpool.

Guardiola segist ekki ætla að skipta um leikstíl þrátt fyrir að lið han hafi glutrað niður 5-3 forystu gegn Monaco í Meistaradeildinni.

„Í dag þurfum að reyna að sækja, við verðum líka að verjast betur. Við viljum skapa færi og fá andstæðinga okkar til að liggja til baka."

„Vandamálið gegn Monaco var að í fyrri hálfleik þá náðum við ekki að skapa okkur mikið. Við getum ekki leyft okkur að spila í dag eins og við gerðum í fyrri hálfleik gegn Monaco."
sagði Guardiola.

„Flest mörkin sem við höfum verið að fá á okkur á þessu tímabili hafa verið eftir mistök af okkar hálfu. Það er búið að gerast allt of oft á þessu tímabili og vonandi munum við koma í veg fyrir þetta á næsta tímabili." sagði Guardiola að lokum
Athugasemdir
banner
banner
banner