Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 19. mars 2017 13:57
Magnús Már Einarsson
Jamie Carragher mætir til Íslands
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, verður heiðursgestur á árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi sem fram fer í Kórnum þann 24. maí næstkomandi.

Liverpoolklúbburinn hefur undanfarin ár fengið þekkta fyrrum leikmenn félagsins til að mæta sem heiðursgestir á árshátíðina á Íslandi.

Robbie Fowler, Didi Hamann, Bruce Grobbelar, John Barnes og Ian Rush eru á meðal fyrrum leikmanna Liverpool sem hafa verið heiðursgestir á árshátíð klúbbsins undanfarin ár.

Carragher mætir á árshátíðina að þessu sinni en hann lék allan sinn feril með Liverpool.

Carragher lagði skóna á hillluna árið 2013 en í dag starfar hann sem sérfræðingur hjá Sky Sports.

„Stefnt er að því að hefja miðasölu fyrir félagsmenn miðvikudaginn næsta, nánar tiltekið þann 22. mars en salan verður vel auglýst hér á vefnum sem og á Facebook síðu klúbbsins sem finna má hér," segir á liverpool.is.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner