sun 19. mars 2017 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Klopp: Verð sáttur eftir nokkra tíma
Klopp og Guardiola eru miklir mátar.
Klopp og Guardiola eru miklir mátar.
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp er ekkert sérstaklega ánægður með að hafa misst niður 1-0 forystu gegn Manchester City á Etihad leikvanginum.

James Milner kom Liverpool yfir eftir umdeildan vítaspyrnudóm snemma í síðari hálfleik en Sergio Aguero jafnaði svo gegn gangi leiksins eftir góðan kafla hjá Liverpool.

„Að ná í stig á útivelli gegn Manchester City er gott afrek fyrir hvaða félag sem er," sagði Klopp eftir leikinn.

„Það gerðist nokkrum sinnum að við höfðum engin svör við gæðunum þeirra, en við hefðum samt getað unnið leikinn. Við neyddum markvörðinn þeirra til að verja glæsilega og við hefðum getað gert út um leikinn í seinni hálfleik en gerðum það ekki og hleyptum þeim aftur inn.

„Þeir áttu skilið að skora en við hefðum getað skorað meira. Ég er ekki sáttur með stigið núna en ég verð það eflaust eftir nokkra tíma."

Athugasemdir
banner
banner
banner