Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 19. apríl 2014 13:10
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Cardiff og Stoke: Aron á bekknum
Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson er á bekknum hjá Cardiff er liðið fær Stoke í heimsókn í ensku fallbaráttunni.

Gary Medel og Peter Whittingham halda Aroni úr byrjunarliðinu og munu heyja spennandi miðjubaráttu við Stephen Ireland, Steven Nzonzi og Glenn Whelan.

Peter Crouch leiðir sóknarlínu Stoke með Marko Arnautovic og Peter Odemwingie sér til aðstoðar á meðan Fraizer Campbell er fremstur hjá Cardiff.

Cardiff þarf nauðsynlega sigur í fallbaráttunni á meðan Stoke spilar upp á lítið annað en stolt enda búið að tryggja sér öruggt sæti.

Cardiff City (4-2-3-1): Marshall - Theophile-Catherine, Caulker, Cala, Fabio - Medel, Whittingham - Kim, Mutch, Dæhli - Campbell
Varamenn: Lewis, Turner, Jones, Eikrem, Aron Einar, Zaha, John

Stoke City (4-5-1): Begovic - Cameron, Shawcross, Wilson, Pieters - Arnautovic, Nzonzi, Ireland, Whelan, Odemwingie - Crouch
Varamenn: Sorensen, Muniesa, Adam, Palacios, Walters, Assaidi, Wilkinson
Athugasemdir
banner
banner