Barnsley er í slæmri stöðu í fallbaráttu Championship deildarinnar eftir tap á heimavelli gegn Leeds United, sem er ellefu stigum frá fallsvæðinu.
Millwall kom sér úr fallsæti með sigri á Middlesbrough þar sem Stefan Maierhofer skoraði bæði mörk gestanna.
Millwall kom sér úr fallsæti með sigri á Middlesbrough þar sem Stefan Maierhofer skoraði bæði mörk gestanna.
Matt Derbyshire skoraði eina mark Nottingham Forest er liðið lagði Birmingham, sem er einu stigi frá fallsæti. Nottingham er þremur stigum frá umspilssæti þegar þrjár umferðir eru eftir.
Watford lagði þá Ipswich í umspilsbaráttunni. Ipswich er einu stigi frá umspilssæti og Watford er fjórum stigum neðar.
Barnsley 0 - 1 Leeds United
0-1 Ross McCormack ('16)
Middlesbrough 1 - 2 Millwall
0-1 Stefan Maierhofer ('16)
0-2 Stefan Maierhofer ('30)
1-2 Emmanuel Ledesma ('80)
Nottingham 1 - 0 Birmingham
1-0 Matt Derbyshire ('2)
Watford 3 - 1 Ipswich
1-0 Albert Riera ('21)
1-1 Anthony Wordsworth ('50)
2-1 Gabriele Angella ('63)
3-1 Lewis McGugan ('65)
Athugasemdir