Giorgio Chiellini, leikmaður Juventus á Ítalíu, þakkar Roma kærlega fyrir samkeppnina sem liðið hefur sýnt á þessari leiktíð og að það hafi verið spark í rassgatið fyrir ítalska meistaraliðið.
Juventus er í toppsætinu með 90 stig þegar fjórir leikir eru eftir en fátt kemur í veg fyrir að liðið fagni sínum þriðja deildarsigri í röð.
Chiellini er ánægður með samkeppnina sem Roma hefur sýnt á þessari leiktíð en Juventus hefur þurft að vinna fyrir forskotinu sem það er með þegar fjórir leikir eru eftir.
,,Roma á hrós skilið fyrir að gera okkur kleift að njóta þess að fagna deildartitlinum, sem hefði ekki verið jafn gaman ef það hefðu verið 20 stig á milli toppliðsins og liðsins í öðru sæti," sagði Chiellini.
Athugasemdir