Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 19. apríl 2014 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Klopp: Ég er enn ástfanginn af Dortmund
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, þjálfari Borussia Dortmund í Þýskalandi, segist ekki hafa áhuga á því að taka við Barcelona í sumar en hann segist ástfanginn af Dortmund.

Tata Martino, þjálfari Barcelona, mun að öllum líkindum yfirgefa liðið í sumar en hann hefur ekki átt sjö dagana sæla hjá Börsungum.

Liðið er úr leik í Meistaradeild Evrópu, titilmöguleikarnir eru minni og þá tapaði liðið úrslitaleik spænska konungsbikarsins á dögunum.

Klopp hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna en hann hefur þó ekki áhuga á að taka við liðinu.

,,Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur, við erum enn svolítið ástfangin af Dortmund og hvernig hlutunum er háttað hér," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner