Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. apríl 2014 12:39
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky 
Pardew veit að stuðningsmennirnir vilja hann burt
Alan Pardew viðurkennir að rúmur helmingur stuðningsmanna Newcastle vilja hann burt frá félaginu eftir fimm töp í síðustu sex leikjum.

Liðið hefur tapað sex af síðustu átta heimaleikjum sínum án þess að skora stakt mark.

,,Ég býst við að rúmur helmingur stuðningsmanna á St James' Park vilji mig burt frá félaginu," viðurkenndi Pardew.

,,Ef mótmælin eru bara gegn mér þá samþykki ég það og vona að það hafi ekki áhrif á leikmennina.

,,Ég vil að það sé lítil pressa á leikmönnunum en hún er alltaf gríðarlega mikil. Þetta er pirrandi fyrir mig því maður vill vera studdur og öðlast virðingu þessa fólks. Það er sárt þegar maður er hvorki studdur né virtur.

,,Ég ætla ekki að fela mig, ég ætla ekki að labba burt eða loka mig inní skelinni. Ég legg bara meira á mig til að breyta skoðun fólks."

Athugasemdir
banner
banner
banner