Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 19. apríl 2014 10:15
Ívan Guðjón Baldursson
Poyet: Hlakka til að sjá Wickham skora meira
Connor Wickham er búinn að skora 13 mörk og leggja 3 upp í 31 leik fyrir Sunderland
Connor Wickham er búinn að skora 13 mörk og leggja 3 upp í 31 leik fyrir Sunderland
Mynd: Getty Images
Gus Poyet segist kunna að meta Connor Wickham og hlakkar til að sjá hann raða inn mörkunum á næstu vikum.

Sunderland er sex stigum frá öruggu sæti í deild þegar fimm leikir eru eftir og á liðið útileik gegn titilbaráttuliði Chelsea um helgina, sem hefur aldrei tapað á heimavelli í úrvalsdeildinni undir stjórn Mourinho.

,,Sumir stjórar gefa sóknarmönnum fimm leiki til að skora, sumir 10, sumir 20, en þegar allt kemur til alls þá verðuru að skora," sagði Poyet um Wickham.

,,Aðalatriðið er að skora og það var mjög gott fyrir Connor að skora nokkur mörk.

,,Þetta var magnað því við þurftum þessi mörk og þau komu bæði á réttum tíma á útivelli gegn Manchester City, sem er mjög erfiður.

,,Stundum eiga sóknarmenn 10, 15 leiki sem þeir skora ekki í en skora svo sjö eða átta mörk á tveimur vikum. Ég hlakka til þess."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner