Aston Villa og Liverpool leiða saman hesta sína á Wembley í undanúrslitum enska bikarsins eftir rúman klukkutíma.
Liðið sem vinnur í dag leikur gegn Arsenal í úrslitaleik keppninnar þann 29.maí næstkomandi en Arsenal vann Reading í framlengdum leik í gær.
Aston Villa er án kólumbíska miðjumannsins Carlos Sanchez en hann er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Tottenham. Shay Given hefur staðið vaktina í bikarkeppninni hjá Aston Villa í vetur og á því verður engin breyting í dag.
Steven Gerrard snýr aftur í byrjunarlið Liverpool eftir langa fjarveru en Mario Balotelli er á bekknum.
Byrjunarlið Aston Villa:Given, Bacuna, Baker, Vlaar, Richardson, Westwood, Delph (c), Cleverley, Grealish, N’Zogbia, Benteke.
Varamenn: Guzan, Okore, Sinclair, Weimann, Cole, Lowton, Gil.
Byrjunarlið Liverpool:Mignolet, Can, Lovren, Skrtel, Moreno, Henderson, Gerrard, Allen, Coutinho, Markovic, Sterling.
Varamenn: Jones, Toure, Manquillo, Johnson, Balotelli, Lambert, Borini.
Athugasemdir