Newcastle fær Tottenham í heimsókn á St.James´ Park í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Newcastle hefur verið í frjálsu falli í síðustu leikjum en liðið hefur tapað fimm leikjum í röð. Þeir endurheimta fyrirliða sinn, Fabricio Coloccini, úr leikbanni og tekur hann stöðu við hlið Mike Williamson í hjarta varnarinnar.
Tottenham er búið að missa af Meistaradeildarsæti en liðið hefur ekki skorað í síðustu tveim deildarleikjum og situr í 7.sæti en fer upp í það sjötta með sigri í dag.
Byrjunarlið Newcastle:Krul; Janmaat, Coloccini (c), Williamson, Anita; Abeid, R.Taylor, Colback; Gouffran, Perez, Cabella.
Byrjunarlið Tottenham:Vorm, Dier, Fazio, Vertonghen (c), Rose; Bentaleb, Paulinho, Chadli, Eriksen, Lamela; Kane
Athugasemdir