sun 19. apríl 2015 05:55
Hafliði Breiðfjörð
England í dag - Aston Villa og Liverpool á Wembley
Hvað gerir Liverpool á Wembley í dag?
Hvað gerir Liverpool á Wembley í dag?
Mynd: Getty Images
Það fara þrír leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem Manchester City mun gera heiðarlega tilraun til að snúa hörmungargengi liðsins við. Liðið á heimaleik gegn West Ham í dag en liðið hefur verið í frjálsu falli í deildinni og er aðeins fjórum stigum frá Livepool sem er í 5. sæti.

Í hinum leiknum mætast lið Newcastle og Tottenham en það er einnig spilað í undanúrslitum FA bikarsins.

Þá mætast Aston Villa og Liverpool á Wembley. Liðið sem vinnur þann leik mætir Arsenal í úrslitaleik en þeir slógu Reading út í framlengdum leik í gær.

Sunnudagur:
12:30 Manchester City - West Ham (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Newcastle - Tottenham (Beint á Stöð 2 Sport 2)

FA Bikarinn:
14:00 Aston Villa - Liverpool (Beint á Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner