Heimild: BBC
Óvíst er hvort Gareth Bale geti tekið þátt í leik Real Madrid í Meistaradeid Evrópu í vikunni vegna meiðsla.
Bale haltraði af velli í 3-1 sigri Real Madrid á Malaga í gærkvöldi, tognaður á kálfa.
Nú er ekki ljóst hvort hann muni geta spilað seinni leikinn gegn Atletico Madrid á miðvikudaginn.
Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli á þriðjudaginn en Bale hafði verið hvíldur helgina á undan fyrir þann leik.
Athugasemdir