Roberto Mancini hefur ekki átt sérlega góðu gengi að fagna með Inter en sæti hans innan félagsins virðist þó öruggt.
Inter og Milan mættust í erkifjendaslagnum í Mílanó í dag og lauk leiknum með markalausu jafntefli þrátt fyrir hræðilega frammistöðu Milan í leiknum.
Inter fékk urmul færa en ótrúlega rataði boltinn ekki í netið. Inter átti sautján skot í leiknum án þess að koma boltanum inn.
Inter fékk urmul færa en ótrúlega rataði boltinn ekki í netið. Inter átti sautján skot í leiknum án þess að koma boltanum inn.
Bæði lið eru um miðja deild eftir jafnteflið, sjö og átta stigum frá evrópusæti þegar sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.
Napoli lagði þá Cagliari af velli og er komið í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum yfir Sampdoria og fjórum stigum yfir Fiorentina sem á leik til góða gegn Emil Hallfreðssyni og félögum í Verona annað kvöld.
Inter 0 - 0 Milan
Cagliari 0 - 3 Napoli
0-1 Jose Callejon ('24)
0-2 Antonio Balzano ('45, sjálfsmark)
0-3 Manolo Gabbiadini ('59)
Rautt spjald: Christian Maggio, Napoli ('65)
Athugasemdir