Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 19. apríl 2015 19:13
Magnús Már Einarsson
Lengjubikar B-deild: Leiknir F. í undanúrslit
Mynd: Jóhanna Kristín Hauksdóttir
Leiknir Fáskrúðsfirði tryggði sér sæti í undanúrslitum í B-deild Lengjubikars karla með 5-0 sigri á KF í dag.

Leiknir fer áfram með bestan árangur í 2. sæti í riðlunum þremur. Leiknir þurfti fimm mörk í dag til að ná betri markamun en ÍR sem varð í öðru sæti í riðli eitt.

Það tókst hjá Fáskrúðsfirðingum en þeir mæta Aftureldingu í undanúrslitum á fimmtudag. Völsungur og Sindri mætast í hinum undanúrslitaleiknum.

Leiknir F. 5 - 0 KF
1-0 Fannar Bjarki Pétursson ('14)
2-0 Hlynur Bjarnason ('31)
3-0 Marinó Óli Sigurbjörnsson ('43)
4-0 Vignir Daníel Lúðvíksson ('78)
5-0 Alexander Bjarki Rúnarsson ('84)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner