Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 19. apríl 2015 13:11
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Vísir 
Myndband: Skrautlegt sjálfsmark James Collins
Adrian átti ekki möguleika í þetta
Adrian átti ekki möguleika í þetta
Mynd: Getty Images
Nú stendur yfir leikur Man City og West Ham í ensku úrvalsdeildinni.

James Collins kom Man City yfir á 18.mínútu en fyrir þá sem ekki vita þá leikur Collins í vörn West Ham.

Collins ætlaði sér væntanlega að hreinsa fyrirgjöf Jesus Navas í burtu en það vildi ekki betur til en svo að boltinn söng í netinu.

Ansi hreint mögnuð afgreiðsla hjá Collins en því miður fyrir Walesverjann í vitlaust mark.

Myndband af þessu skrautlega sjálfsmarki má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner