Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. apríl 2015 12:33
Arnar Geir Halldórsson
Rússland: Dramatískt jafntefli hjá Ragnari
Ragnar og félagar náðu jafntefli á erfiðum útivelli
Ragnar og félagar náðu jafntefli á erfiðum útivelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
CSKA Moskva 1-1 Krasnodar
1-0 Pontus Wernbloom ('44)
1-1 Wanderson (´88)


Ragnar Sigurðsson spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Krasnodar þegar liðið gerði jafntefli við CSKA Moskva í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Brasilíumaðurinn Wanderson jafnaði leikinn á lokamínútunum en sænski landsliðsmaðurinn Pontus Wernbloom hafði komið heimamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks.

Gífurlega mikilvægt jöfnunarmark en Krasnodar hefur nú 48 stig í 2.sæti deildarinnar. CSKA Moskva er með fjórum stigum minna í 3.sæti. Annað sætið gefur sæti í forkeppni Meistaradeildarinnar á meðan þriðja sætið fer í Evrópudeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner